Fyrstu hjálparnámskeið 19 nóvember
Fyrstu hjálparnámskeið 19 nóvember
Fyrstu hjálparnámskeið 19 nóvember
  • Hlaða mynd í myndasafnsskoðara, Fyrstu hjálparnámskeið 19 nóvember
  • Hlaða mynd í myndasafnsskoðara, Fyrstu hjálparnámskeið 19 nóvember
  • Hlaða mynd í myndasafnsskoðara, Fyrstu hjálparnámskeið 19 nóvember

Fyrstu hjálparnámskeið 19 nóvember

Venjulegt verð
16.000 kr
Tilboðsverð
16.000 kr
Venjulegt verð
Uppselt
Einingarverð
á 
Skattur innifalinn.

Miðvikudagur 19. nóvember

Tímasetning: 17:30 – 21:30

Staðsetning: Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík

Á námskeiðinu er farið í grundvallaratriði er snúa að fyrstu hjálp og endurlífgun. Lögð er áhersla á að kenna þátttakendum hvað ber að hafa í huga þegar komið er að slysi. Hvernig skoða og meta á slasaðan eða veikan einstakling og hvaða skyndihjálp á að beita þar til frekari aðstoð berst. Á námskeiðinu er m.a. farið í aðkomu að slysi, endurlífgun og notkun á hjartastuðtæki, stöðvun blæðinga og fyrstu meðferð við brotum og sárum.

Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg. Þátttakendur þurfa að vera skráð áður en námskeiðið hefst og ekki er tekið við skráningum á staðnum. Ef námskeiðið er fullt er ekki hægt að bæta við fleiri þátttakendum.

Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið og læknisvottorð liggur ekki fyrir. Eftir að námskeiðið er hafið er þátttökugjaldið ekki endurgreitt.

Allar frekari upplýsingar í síma 570-5900 og á skoli@landsbjorg.is