Vörulína: Gæfumunir
Gæfumunir Landsbjargar eru stafrænar gjafir sem eru ómissandi liður í fjáröflun björgunarsveitanna. Gjöf þín gerir okkur kleift að endurnýja lífsnauðsynlegan búnað og tæki. Með kaupum á Gæfumunum styrkir þú björgunarsveitir og slysavarnadeildir landsins. Í kaupferlinu er hægt að skrifa persónulega kveðju.