Húfan er úr merino ullarblöndu og því sérstaklega hlý og mjúk.
Innblástur fyrir mynstur Landsbjargarhúfunnar er hálendi Íslands og fjallagarðar landsins. Mynstrið er unnið út frá loftmynd af fjallaskaga á norðanverðu Íslandi. Loftmyndin var tekin árið 1999, sama ár og Slysavarnarfélag Íslands og Landsbjörg sameinuðust og til varð Slysavarnarfélagið Landsbjörg.
Húfan kemur í takmörkuðu upplagi. Ágóði af sölu húfunnar rennur til styrktar Landsbjargar.


